Þá er stelpan komin heim frá London! Ohh þetta var alveg æðisleg
ferð í alla staði!
Byrjaði náttúrulega á fimmtudaginn, en þá sóttu stelpurnar mig í
Kjarrhólmann um hádegisbil, þá allar búnar að opna sér bjór
þær
eru alveg met
nú það var brunað í Leifsstöð og tékkað sig inn, og
haldið í fríhöfnina..byrjað á því að snæða, stelpurnar fengu sér
bjór með, ég lét mér nægja Coca Cola..er svo lítil bjórmanneskja!
Svo var tekið röltið og keypt helstu nauðsynjahluti, ég splæsti í
minniskort í myndavélina mína, eitt gígabæt
svona svo ég væri
alveg seif í London og gæti tekið nóg af myndum, sem og ég gerði!
Nú, við erum nottla svo heyrnarlausar, eða kannski vorum við svo
uppteknar af því að versla því allt í einu heyrum við bara:
lokakall á síðustu 10 farþega á leið til London! bwahaha og við
tókum sprettinn..hlið 32 thank you very nice! vélin var farin af
stað og allt og við hlupum út á flugbraut..nei nú er ég að djóka
híhí! anyhow, fínt að vera síðust í vélina því vélin var ekki nærri
því full þannig að við breiddum bara úr okkur.. ég var nú doldið
mikið smeyk þegar flugstjórinn kallaði að það væri pínu seinkun því
að e-h neyðarhurð gæti ekki lokast nógu vel! þá varð mín nú alveg
stjörf
en svo komst það víst í lag..allavega brunaði vélin af
stað..úff..en það gekk áfallalaust fyrir sig
lent á Heathrow um
átta leytið að Londonskum tíma
vorum svo varla komnar útaf
vellinum þegar einhver fjandans útlendingur reyndi að lokka okkur
inní bíl til sín, en við féllum sko ekki fyrir því
svo var bara
komið fram við okkur eins og drottningar...fundinn fyrir okkur taxi
og hurðir opnaðar og við bara kallaðar ladies og ég veit ekki hvað
og hvað
Gæti alveg vanist svona framkomu
nú svo var bara fundið
hótelið sem reyndist ekki vera jafn fallegt og á myndum..djíses
aldrei treysta myndum af hótelum á netinu!...en við vorum svo
heppnar að fá tvö herbergi hlið við hlið með hurð á milli sem við
fengum lykilinn að svo þetta var bara eitt stórt herbergi!
Niiicceeee! nú hittum loksins Ingibjörgu..víííííí!! og knúsuðum
hana í bak og fyrir og svo fórum við allar saman e-h útá röltið að
skoða mannlífið og fleira en fórum svo fljótlega heim í koju...mjög
skrautleg nótt þar á ferð...Habba mín fór á kostum..vaknaði bara
við þvílíkt ískur og sneri mér við, þá stóð mín bara uppí rúminu
fyrir ofan Þórönnu greyið, á nærunum einum saman að reyna að skrúfa
VEGGLJÓSIÐ af veggnum! henni var bara aðeins að dreyma..ég hreytti
í hana hvað í andskotanum hvað hún væri að gera og þá rankaði hún
við sér og lagðist aftur að sofa..bwahaha..ég var hálfsmeyk bara!
en hér koma smá punktar frá ferðinni...
Föstudagur:
Vaknað sneeemmmaa...og farið í morgunmat..ekta english
breakfast, beikon og egg
svo var farið og fundið metró og kíkt í
Madame Tussauds, vaxmyndasafnið fræga! ohh það var geeeðveikt! þar
fórum við líka í ógeðs draugahús, úfff var mín hrædd! ég var stjörf
af hræðslu..lifandi leikarar og ég veit ekki hvað og hvað! núhh,
eftir vaxið fórum við og fengum okkur að snæða, á Pizza Hut..og svo
var verslað..ái! VISA kortið fékk ágætis útreið þann daginn,
greyið!
nú svo fórum við uppá hótel..sötruðum á barnum
þar
og dressuðum okkur upp og héldum niðrí bæ..útað borða á voða
fínum stað og sötruðum Mohito og með því einhvað frameftir
og
röltum svo um bæinn..fullt af skuggalegum gaurum að reyna að lokka
okkur inná e-h staði..vá hvað sumir eru ágengir þarna úti! svo var
það bara kojan...Habba var stillt þessa nóttina..hehehe
Laugardagur:
Vaknað snemma...aftur...og farið í metró til Notting Hill..þaðan
kíkt á PortaBelló markaðinn..flottur markaður..aðeins verslað þar
og svo fórum við á Oxford Street..þar sem við náðum nú bara 3
búðum
TopShop þar er sko á 3 hæðum og stærra en ég veit ekki
hvað..mar var bara hræddur þarna inni! enda vorum við 5 saman og
náðum að týna hvor annari! svo var bara hringt: hvar ertu? í
þessari deild.. já og hvar er hún? hehehe mar var alveg lost þarna!
nú svo var það bara hótelið..eða öllu heldur hótelbarinn..þar
héldum við tískusýningu á dótinu sem við höfðum keypt og sötruðum
aðeins og héldum svo uppá herbergi að sjæna okkur til...fórum í
okkar fínasta og kíktum út..byrjuðum á voða fínu steikhúsi..mmm
bernaise! þar vorum við síðastar út, sátum þar að sumbli og tjatti
frameftir, en tókum svo strætó niðrí bæ á skemmtistaðinn Cheers, en
stelpan á hótelinu ráðlagði okkur að fara þangað!
sötruðum Tópas
á leiðinni sem við gripum með okkur úr fríhöfninni svo Ingibjörg
fengi e-h íslenskt að drekka
en á Cheers já, ekkert smá gaman
þar, vorum varla komnar inn þegar barþjónnin tjáði okkur það að
gaurinn við enda barsins ætlaði að splæsa á okkur..ekki verra! hann
sagðist ekki geta drukkið nema við værum ánægðar..uuu okei!
spes! vorum svo þar alveg til lokunar og tókum þá bus heim,
þar sem einn gerði tilraun til að ræna Þórönnu, en Habba sá það!
djöfuls krimmar þarna úti
stelpurnar fóru á hótelið og ég og
habba kíktum í sjoppu, þar sem við lentum í e-h ógeði sem var að
reyna að tæla okkur með sér heim til sín, meira fíflið..við rifum
bara kjaft við hann á íslensku
hehehe góðar! svo var það bara
koddinn..aaahh...
Sunnudagur:
Vaknað aðeins seinna en hina morgnana
eða svona rétt fyrir
hádegi, og haldið yfir á Kenny að snæða! Tókum svo strætó til
Camden Town, og fórum á Camden Market, ekkert smá flottur og stór
markaður.. ég og Þóranna keyptum okkur svona höfuðklóru þar.. vááá
góða græja
og nottla fullt fullt af smádóti
svo fengum við
okkur súkkulaðihjúpuð jarðarber..og nammmm mar bara stundi við að
borða þetta, bwahaha
eftir markaðinn fórum við að
túristast..fórum í Sight-Seeing..svona tveggja hæða strætó, sátum
nottla efst, strætóbílstjórinn elskaði okkur alveg og sagðist ætla
að koma með okkur til Íslands, ekki sá ég hann í flugvélinni í
gær
nú víð sáum London-eye,Big Ben, fórum yfir Tower Bridge og ég
veit ekki hvað og hvað, ekkert smá gaman! Svo borðuðum við á Planet
Hollywood og váááá góðu borgarar! shift! tókum síðan bara strætó
heim og fórum að pakka..eftir smá tískusýningu..hehe
svo kúrði ég
hjá Ingibjörgu minni þessa nótt, vííí
Mánudagur:
Vaknað fyrir allar aldir, tékkað sig út, farið með leigubíl á
Heathrow og vitiði hvern við hittum þar!!!!!???!!! MR.BEAN!!!!!
Rowan Atkins..jesús ég var eins og lítil smástelpa þegar ég stóð
þarna við hliðina á honum..stelpurnar báðu mig vinsamlegast um að
reyna að vera venjuleg, en ég bara flissaði og roðnaði eins og
smástelpa
átti bara bágt með mig! þorði ekki einu sinni að
fá að taka mynd af honum, fannst það einhvað svo dónalegt
núhh flugið heim gekk svona áfallalaust fyrir sig
og við lentum
um hálfjögur í gær á Íslandi...alltaf nice að koma heim!
langar bara að þakka túttunum minum fyrir yndislega ferð! Hún var
æði! og héðan í frá verður þetta árlegt takk fyrir takk!
Myndirnar koma við tækifæri, svona þegar ég nenni, tók nú bara
þrjúhundruð og e-h myndir..þær fara þó ekki allar hér inn..sumar
eru ekki við barna hæfi
híhí!
Annars var ég mest svona ljóskan í ferðinni...segi útvöldum það
við tækifæri
já,ég er alveg einstök sko...úff

Ég og Ingibjörg

Attur

Þóranna skvísípæ!

Túristarnir

Habba veggljósaskrúfari!