Mjólkabrjóst..

Er hún með brjóst í mjólkunum???

13.2.2008 05:14:37 / AnnaMagga

KLUKK!

Hérna er allt klukkið sem ég hef verið klukkuð af í gegnum mína bloggtíð:)

KLUKK NR.1. 7 hlutir um 6 hluti!

7 hlutir sem ég vil gera áður en ég dey:
* Mennta mig í leiklist
* Leika í kvikmynd
* Taka þátt í alvörusöngleik (þ.e.a.s. með atvinnufólki0 )
* Syngja einhvað af viti...
* Koma mér upp fjölskyldu...
* Ferðast til fleiri landa ( hef nú bara farið til Köben og Costa )
* Stækka.... ( nei það er annars fínt að vera lítill ) 0

7 hlutir sem ég get:
* Leikið..
* Næ tungunni uppá nef...
* Teiknað..
* Bakað súkkulaðiköku og gulrótarköku...
* Haldið lagi..
* Verið feimin..
* Keyrt..

7 hlutir sem ég get ekki:
* Haldið fyrirlestur fyrir framan fullt af fólki (já ég veit að ég vil verða leikkona en það er tvennt ólíkt..að leika og halda e-h fyrirlestur) ...
* Þrifið ælu.. (allt of klýgjugjörn)
* Ákveðið einhvað stórt..
* Tuggið gulan, silfraðan og rauðan Extra..
* Haft volume-takkan á oddatölu á útvarpinu í bílnum.. (skamm Dísa)
* Verið þolinmóð.. úpsí...
* Bitið í rækju...borða samt rækjusalat..

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
* Brosið..
* Karakterinn..
* Húmorinn...
* Augun..
* Hógværð..
* Hárið..
* Ekki skemmir ef fatasmekkur er góður!0

7 frægir sem heilla:
* Mark Wahlberg
* Freddie Prince Jr
* David Beckham
* Johnny Deep
* Robbie Williams
* Adam Brody
* Chad Michael Murray


7 orð/setningar sem ég segi oftast:
* Otei...
* Sorrý...
* Ert´ekki að kidda mig?
* Er ekki allt í orden?
* Tjahh mar spyr sig..
* Ég er geim..
* Hehe..


KLUKK NR.2. Núverandi..


núverandi tími: 13:09

núverandi föt: Stuttbuxur, hlýrabolur og sokkar..mjög falleg samsetning..0

núverandi skap: Æji svona bara..la la ..

núverandi hár: Rosa dökkt og sítt...

núverandi pirringur: Hann kemur og fer..kemur og fer...

núverandi lykt: Svona gúrku og melónulykt..geðveikt góð..

núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Vera í ræktinni..alltof löt við það...

núverandi skartgripir: None..það passar ekki við stuttbuxurnar!0

núverandi áhyggja: Söknuður..

núverandi löngun: Fara inní eldhús og búa mér til góðan hádegismat..

núverandi ósk: Ósk Norðfjörð..hahaha

núverandi farði: None...nema leyfar af maskara kannski síðan í gær!0

núverandi eftirsjá: að hafa ekki sótt um í Lhí síðasta vetur..

núverandi vonbrigði: Nenni nú ekki að fara að deila því með öllum..

núverandi skemmtun: helgin framundan..hún verður risaleg..

núverandi ást: Flókið..

núverandi staður: Í stofunni...fyrir framan tölvuna væntanlega..

núverandi bók: Röddin..eftir Arnald Indriða..

núverandi bíómynd: Hmmm...hmmm..segi bara Rock star..elska hana..

núverandi íþrótt: ræktin...þegar ég mæti..

núverandi tónlist: úff svo mikið.. þessa dagana er ég soldið að hlusta á The Cure, The doors, prince, lisu loeb, Sheryl Crow..annars hlusta ég rosalega mikið á tónlist.. var að uppgötva nýtt band á airwaves...New Radio..geggjað band..selló og kontrabassi,trommur og gítar...snilld..!

núverandi lag á heilanum: Riddari götunnar..Siggi Hólm var að flauta það svo mikið í vinnunni í gær0

núverandi blótsyrði: hef ekkert verið að blóta mikið uppá síðkastið..

núverandi msn manneskjur: Hildur Eik..allir einhvað away og einhvað..er ég svona leiðinleg? hehe!0

núverandi desktop mynd: Mynd af Binna og Ómari í dimmiteringabúningum af mér og Ingibjörgu..skal leyfa ykkur að sjá en þið megið ekki segja þeim!0


núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Er að fara útað borða og fleira með Jóna og co. Hann er að flytja norður og við ætlum að halda smá kveðjuthing fyrir hann!

núverandi manneskja sem ég er að forðast: Uu held það sé enginn..

núverandi dót á veggnum: Hmm Spegill, Kr búningur, rosa flott mynd úr Ikea, Mynd sem ég teiknaði.. (sem er samt eftir Erró.. ), og mynd sem ég fékk í útskriftargjöf frá Guðrúnu og Árna sem Guðrún tók sjálf..



KLUKK NR.3. 5 Staðreyndir um sjálfa mig..

1. Þegar ég var svona 11 ára var ég stödd á áramótabrennuni í Þorlákshöfn, og var í nýja fína snjógallanum mínum sem ég hafði fengið í jólagjöf og líka í nýja fína dressinu innan undir gallanum, sem ég hafði fengið í afmælisgjöf því ég á jú afmæli í desember, nú pabbi lætur mig hafa einhvað stórskemmtilegt blys og ég held því á lofti meðan það þeytist úr því... svo er það búið og ég ætla að fara að lækka hendina niður en nei þá skýst neðan úr því og bæng inná hendina á mér..bara nánast kviknar í mér.. nú gallinn og dressið skemmdist...mín voða sár0 og ég fékk stærðar brunasár á hendina..og allir á brennuni mynduðu hring utan um mig, meðan pabbi var þarna að hlúa að mér hágrátandi...skemmtilegt? nii..en gaman að hlægja að því eftir á!0

2. Þegar ég var svona 9 ára fór ég í Rokklingaskólann, það var geggjað stuð! Enda var ég rokklingafrík! Var geðveikt skotin í aðalgæjanum, Þorsteini Mar...héldum svo sýningu og já..ég stóð mig ágætlega þar..einbeitti mér kannski aðeins of mikið og meðan allur hópurinn fór hliðar saman hliðar í hægri áttina stóð mín útá enda og fór hliðar saman hliðar í vinstri áttina..heil heil lengi.. sá þetta bara á myndbandinu... hahahaah

3. Fyrir 3 árum lék ég í auglýsingu fyrir Orkuna..stuð.. það var auglýsing í sjónvarpinu, mynd af mér á strætisvögnum og oft heilsíðumynd af mér í DV.. gaman að því...en sminkan var samt ekki að gera góða hluti..lét mig líta út eins og miðaldra konu...don´t know why..átti að leika rokkarastelpu0

4. Ég á kött sem heitir Sófus..hann er yndislegur..stelur af mér koddanum þegar ég sef..ég er að segja ykkur það, ég vakna bara með hausinn fyrir neðan koddan..en passa samt ennþá í rúmið því ég er svo lítil..tíhí.. og já svo hrýtur hann!! Stundum get ég ekki sofnað fyrir hrotunum í kettinum mínum! Það finnst mér bara fyndið..og sætt0

5. Ég hef 5 sinnum kveikt í hárinu á mér..ég er sko ekkert venjuleg stelpa, hell no... frægasta atvikið var í erfðadrykkju í Perlunni..þegar mín stendur í röð til að fara að skrifa í gestabókina, var með svona Röggu Gísla topp.. nú svo kemur að mér..er samt með þvílíkt marga í röð á eftir mér, á borðinu er kerti, gestabók og mynd... ég beygi mig niður og skrifa í bókina..en heyri samt einhvað skrýtið hljóð..svona eins og þegar einhvað er að brenna..og það mjög nálægt mér..lít rangeyg á toppin á mér og já þar er hann í ljósum logum..agalega skemmtilegt, allir í röðinni að slá á ennið á mér!! bara þetta er allt í lagi..ég var nú ekki lengi að finna mömmu gömlu, rífa af henni bíllyklana og útí bíl..og hún skildi ekki neitt, ætlarðu ekki að kveðja fólkið Anna Magga?? ég bara heh nei, ég verð að fara útí bíl núna, mér leið það kjánalega!!!


Og svo endurnýjaði ég eitt gamalt klukk...og hér er það!:)


núverandi tími: 01:45

núverandi föt: Buxur,bolur og hlý prjónapeysa:)

núverandi skap: Æji svona bara..la la ..

núverandi hár: Dökkt með nokkrum ljósum strípum og rosa sítt..

núverandi pirringur: Hann kemur og fer..kemur og fer...

núverandi lykt: Victoria Secret...Dökk bleika..Romantic einhvað?:)

núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Sofa:)

núverandi skartgripir: Hálsmen bara...

núverandi áhyggja: hvað mig langar að læra..

núverandi löngun: tjahh...

núverandi ósk: Ósk Norðfjörð..hahaha

núverandi farði: Smá púður og maskari..

núverandi eftirsjá: fínu stígvélin mín sem var stolið niðrí World Class;(

núverandi vonbrigði: Nenni nú ekki að fara að deila því með öllum..

núverandi skemmtun: Tilhlökkun til Londonferðarinnar..

núverandi ást: ást?

núverandi staður: Í stofunni...fyrir framan tölvuna væntanlega..

núverandi bók: Röddin..eftir Arnald Indriða..

núverandi bíómynd: Rock Star...tvímælalaust..!

núverandi íþrótt: Ræktin..

núverandi tónlist: Soundtrakkið úr Rock Star..er einmitt að hlusta á Colorful núna:) Eða litríkur..en nóg um það.. uu..Rolling Stones,U2, The Cure,Tori Amos,Damien Rice,The Doors...og meget meget mere...

núverandi lag á heilanum: Hmm fyrir utan Colorful..þar sem ég er jú að hlusta á það..þá andvaka..sem var í júróvisjón forkeppninni..og vil ég kenna ákveðinni manneskju um það..skamm Jóhanna!;)

núverandi blótsyrði: Sveiattan...

núverandi msn manneskjur: frekar fámennt á Msn....klukkan er svo margt..

núverandi desktop mynd: Fonzi!!!!!


núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Hmmm það er nótt núna..áætlanir fyrir kvöldið...hmm kíkja allavega einhvað út..jafnvel hitta systu mína.. og já..gera bara einhvað skemmtilegt!

núverandi manneskja sem ég er að forðast: Hmmm...

núverandi dót á veggnum: Nokkrar töff grímur...spegill, hilla með einhverju kertadóti...og já..that´s it..

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti